Lei?arb?k um n?mskei?i? NKN03








 



Visit my Guestbook Sendu mer linu
Heimasidan min
Alftamyrarskoli
Nam og kennsla a netinu


Skoda gestabokina
Skrifa i gestabokina



 
Spjallgluggi
Powered by TagBoard Message Board
Nafn

URL eda Email

Skilabod(smilies)







Skjalageymsla
<< ny skrif























??runn Traustad?ttir
 
fimmtudagur, september 11, 2003  
hg hghjg hjgh gj hg hgg gg
14:26

sunnudagur, júní 15, 2003  
Ég ætla að segja ykkur frá skrítinni reynslu sem ég varð fyrir í dag. Eftir að hafa hjólað rúmlega 30 km (alltaf að æfa mig) ákváðum við hjónin að fara út í kikjugarð með nokkur sumarbljóm. Eins og stundum áður var ég eitthvað utan við mig og þegar ég fór út út bílnum missti ég veskið mitt án þess að taka eftir því. Það var ekki fyrr en við vorum komin úr garðinum og ætluðum að fara að versla að ég áttaði mig á þessu. Ég dreif mig út í garð og leitaði en fann ekki veskið. OK, það var slæmt en ekkert við því að gera. Rúmum klukkutíma seinna kom heim til mín maður sem ég hafði tekið eftir í garðinum og réttir mér kortin mín, ökuskírteinið og veskið. Hann sagðist hafa fundið þetta í ruslatunnu sem var við hliðina á þar sem við lögðum. Ég er manninum óskaplega þakklát. En það sem mér fannst svo leiðinlegt var að sá sem fann það henti því í ruslið með öllum mínum kortum og skilríkjum eftir að hafa hirt peningana úr því (það er svo sem ekkert við því að segja, ég hafði með sjálfri mér ákveðið að gefa þá í fundarlaun ef veskið kæmi til skila) en afhverju að henda því í ruslið - næsti póstkassi hefði eflaust komið veskinu til skila.
Nú er ég annars að berjast í gegnum grein 2 frá Stefáni, ég get nú ekki neitað því að mér finnst hún óþarflega löng, en það er svo sem ok að lesa hana. Ég hef eytt drjúgum tíma í það að lesa lokaverkefni samnemenda minna frá námskeiði Salvarar og ég verð að segja að mér finnst þau alveg frábær. Ég vona svo sannarlega að þau verði aðgengileg á vefnum næstu vetur. Ég hef samt smá áhyggjur af tengingum eftir að FMR tekur yfir ísmenntarsvæði Reykjavíkurkennara. Vonandi uppfærir Salvör slóðirnar ef við sendum henni línu:-)

22:47

fimmtudagur, júní 12, 2003  
Nú er langt síðan ég hef skrifað, en ég var rétt í þessu að átta mig á enn einni tegundinni af heimasíðu. Hún er inni á Webordsvæðinu hans Stefáns og ég er nú búin að fatta nokkur trix sem hægt er að nota, en ég veit ekki slóðina að minni eigin síðu. Kannski er engin slóð:-(
Mikið vildi ég nú annars að við værum en með vinnusamninga eins og áður fyrr, það er alveg ótrúlega leiðinlegt að vera að mæta í skólann og vinna þar nánast út júní. Þar fer allur sjarmi af þessu starfi. Mér fannst alltaf gott svarið sem einhver notaði þegar hann var spurður af því hvers vegna hann vildi gerast kennari - júní, júlí, ágúst.

00:52

þriðjudagur, júní 03, 2003  
Jæja, þá var það skólinn aftur í dag. Ég er nú ekki alveg búin að átta mig á því um hvað þessi kúrs á að fjalla, þegar ég las lýsinguna á honum skildi ég hana þannig að við ættum að velta fyrir okkur kennsluforritum frá öllum hliðum, en nú er ég ekki viss. Eftir hádegið fórum við á fyrirlestra vestur í Háskóla. Þar talaði m.a. Finni sem mér fannst gaman að hlusta á, mikið vildi ég fá að fara í skólaheimsókn til Finnlands og sjá hvernig þeir fara að í UT kennslu.
Í gær afrekaði ég að koma videó mynd í fyrsta skifti út á vefinn. Mér finnst hún reyndar dálítið þung enda notaði ég ekki Producer, kannski léttir hann svona myndir eitthvað, hvað veit ég. En það er gaman að þessu og ég er sko ekki hætt!!
Ekki má nú alveg gleyma menningunni. Í kvöld fór ég á tónleika í Hallgrímskirkju þar sem norsku kvartet söng lög frá 900 ára tímabili, þeir voru magnaðir. Seinni hluta tónleikanna sungu Fóstbræður með þeim og voru góðir að vanda:-)

00:01

þriðjudagur, maí 27, 2003  
Ég er nánast með fráhvarfseinkenni, ekkert blogg í heila viku. Nú leggst ég bara á hnéin út í mold, þegar ég kem heim á daginn og hugsa ekki einu sinni um að kveikja á tölvunni. Þetta er dálítið skrítið, en líka afslappandi.
Held ég fari bara aftur út í moldina - en hlakka nú samt til að hitta skólafélagana í næstu staðbundnu lotu.

22:23

sunnudagur, maí 18, 2003  
Jæja, ekki er nú hægt að hætta blogginu þó svo námskeiðið sé búið. Mér finnst í raun og veru að nokkrir í hópnum séu orðnir stór vinir mínir vegna þess að ég hef fylgst svo vel með þeim á blogginu. Þannig að ef bloggið leggst af þá mun ég sakna vina:-)
Í gær tókst mér að setja tónlist við tvær síður á vefnum mínum um Háaleitishverfið . Reyndar hef ég þá kenningu að maður eigi ekki að vera að hlaða inn tækniatriðum bara af því maður kunni það en þetta er svona sárabót vegna þess hversu seint mér gengur að vinna við PowerPoint og Producer.
Þetta hefur annars verið viðburðarík helgi með miklum matarboðum og tilheyrandi rauðvíns.... Í morgun keyrði ég svo son minn út á flugvöll en hann var að fara í skólaferð til Laos og Thailands. Þetta verður vonandi skemmtileg ferð hjá honum en móður hans finnst þetta dálítið langt á þessum ófriðartímum.
Í dag fór ég svo á tónleika hjá Drengjakórnum í Neskirkju. Tónleikarnir voru nokkuð skemmtilegir, þar var m.a. einn lítill drengur Ísak Ríkharðsson sem söng einsöng af miklum krafti. Þá frumflutti kórinn tvö verk sem höfðu verið samin fyrir þá.

20:40

fimmtudagur, maí 15, 2003  
Í dag tókst að taka video inn með producer, nú verður spennandi að reyna við framhaldið.
Ég hef nú dálítið gaman af því að nemendur mínir sem útskrifuðust fyrir 10 árum ætluðu að setja upp blogg í tilefni 10 ára útskriftarafmælis síns. Ekki gekk það alveg nógu vel hjá þeim og þessar elskur höfðu samband við gamla tölvukennarann og spurðu hvort ég gæti hjálpað. Ég var ákaflega stolt og snaraði upp fyrir þau bloggsíðu með gestabók og teljara. Það er gaman að þessu af því mér finnst þetta kannski vera hluti af unglingamenningu og þó alveg sérstaklega háskólanema. Vinkonur mínar skilja allavega ekki hvað það er að blogga.
Annað mál, ég var að skoða bloggsíðu í dag sem heitir katrin.is, hún er alveg ótrúlega flott uppsett, ég sá að við eigum margt ólært í þessum fræðum sem og öðrum.

23:54

miðvikudagur, maí 14, 2003  
Ég held bara að ég sé tilbúin með vefinn minn um Háaleitishverfið, auðvitað er það þannig að ég gæti unnið við hann í nokkrar vikur í viðbót og ég mun örugglega bæta við hann í framtíðinni - en ég ætla ekki að gera meira núna og set hér punktinn.
Það eina sem ég held að ég eigi enn ólokið er að færa video inn á powerpoint en ég veit bara ekki hvernig ég fer að því og það eru hvergi leiðbeiningar um það. Mér fannst stór sigur að koma videomyndinni inn á tölvuna mína.
Þetta fer allt einhvern veginn, nú verð ég að einbeita mér að nemendum mínum og útbúa prófinn. Strákarnir mínir eru báðir að klára prófinn á morgun svo ég ætla að hafa smá veislu úr því við erum öll að klára á sama tíma.
Mikið held ég að framhaldsskólakennarar séu með miklu betri samninga en við grunnskólakennarar. Ætli maður fái ekki réttindi til þess að kenna í framhaldsskóla eftir þetta nám? Það er nú meiri roluskapurinn að hafa ekki einu sinni kynnt sér hvaða réttindi þetta nám gefur.

22:36

 
Ég var nú svo heppin í dag að einn af þessum ágætu tölvumönnum frá FMR kom til mín og hjálpaði mér við að setja upp firewirekortið í tölvuna mína. Það var nú eins gott því þetta var nú ekki bara plug and play eins og sagði á kassanum. En nú er ég semsagt komin með videoupptöku inn á tölvuna og þá er að klippa hana aðeins til og síðan, já síðan að sameina hana við PowerPoint. Það veldur mér verulegum áhyggjum að vídeotakan færi líklega á þrjá geisladiska, ég hef ekki hugmynd um hvernig ég get þjappað eða á hvaða formati ég á að vista. Please ef einhver þarna úti veit hvað á að gera væri frábært að heyra frá þeim sama það er alveg ofboðsleg vinna að lesa í gegnum allar leiðbeiningarnar.
00:11

mánudagur, maí 12, 2003  
Alltaf er maður eitthvað að potast. Eftir kennslu í dag lokuðum við Sigga tölvustofunni, settum stafrænu vídeóvélina á þar til gerðan fót og tókum upp kynningu við PowerPoint verkefnið. Ég óttast reyndar að ef ég mundi sækja um þularstarf við sjónvarpsstöð, þá gæti ég ekki notað þessa upptöku sem dæmi um færni mína - en ég held ég láti hana duga svona sem fyrstu tilraun. Það kom auðvitað í ljós þegar við ætluðum að flytja myndina yfir í tölvuna að það vantaði firewire kort í tölvuna, ætli þeim sem mættu á síðust staðbundnu lotu hafi verið kennt þetta. Jæja, ég var sem sagt búin að kaupa firewire-snúru úr videó í tölvuna, en kortið vantaði. Ég fór þá í Office One og keypti kort sem ég ætla að setja í vélina mína (okkar) á morgun og vona það besta, það stendu allavega á kassanum plug and play.
Það er nú meira hvað fólk er eitthvað hjálplegt. Ég skrifaði til strætó í morgun og var að spyrja hvort þeir ættu nokkrar myndir af strætó síðan um 1960, ég fékk svar undireins frá Þórhalli Halldórssyni sem bauðst meira að segja til þess að koma með þær til mín. Ótrúlegt. Ég skrifaði Mál og menningu líka fyrir nokkrum dögum vegna mynda sem mig vantaði og þeir hringdu strax í mig og voru ekkert nema almennilegheitin. Ég verð eitthvað svo glöð þegar fólk er svona gott:-)

21:15

sunnudagur, maí 11, 2003  
Búin að sitja í allt kvöld við tölvuna. Það er nú meira hvað fínpússningar geta tekið langan tíma. Nú er þetta allt að smella og vonandi halda tímamörkin þ.e. 15. maí. Það verður gott að geta einbeitt sér að vinnunni og átt dálítið frí með góðri samvisku:-)
23:38

laugardagur, maí 10, 2003  
Þetta er búinn að vera góður dagur, sól og gott veður. Ég var löngu búin að ákveða að taka mér tölvufrí í dag (þó ég sé aðeins að svindla) Mætti með sonum mínum og eiginmanni á kjörstað kl. 9:30 í morgun og allir kusu rétt:-)
Eftir morgungöngu með Platon tókum við garðinn í gegn, slógum grasið, reittum arfa og bárum á garðhúsgögnin. Frábært að ná þessu öllu og meira að segja smá sólbaði líka. Nú erum við að drífa okkur í kosningapartý, vonandi verður þetta skemmtilegt kvöld og ef úrslitin verða hagstæð kíkjum við kannski á réttan skemmtistað :-)

18:40

fimmtudagur, maí 08, 2003  
Í gær kláraði ég að lesa yfir og láta lesa yfir vefinn um Háaleitishverfið, það er reyndar ein síða sem er enn að þvælast fyrir mér þ.e. fyrirtækin en ástæðan er að mig langar að gera stutta vefleiðangra eða kynningar um hvert þeirra en það tekur bara of langan tíma. Ég hef líka verið að velta fyrir mér að láta nemendur vinna smá verkefni um hvert þeirra og setja þarna inn - en þetta verður auðvitað ekki framkvæmt fyrr en næsta vetur. Nú er bara smá vinnsla með skanna og myndavél og þá fer þetta allt að smella.
16:09

þriðjudagur, maí 06, 2003  
Það er eins og bloggið birtist ekki heiman frá mér. Nú er ég í skólanum og bætti inn þessari línu og þá kemur líka fram það sem ég skrifaði heima í gær. Þetta er mjög duló!
09:04

mánudagur, maí 05, 2003  
Ég verð aðeins að bæta við, það er alveg ferlega gaman í þessu jóga-spinning. Það tekur nú aldeilis á að hjóla í 30 - 40 mín og gera æfinga á meðan en aldrei þessu vant er ekki leiðinlegt í leikfimi, engin gargandi tónlist eða tryllingslegar æfingar. Þarna er skemmtileg, hress kannski dálítið gamaldags tónlist, stillt þannig að maður heyrir í kennaranum og eftir hálftíma á hjólinu er farið í sal og þar gerðum við góðar teygjuæfingar í hálftíma, mér leið eins og manneskju eftir tímann.
Þetta hentar mér vel núna enda er ég búin að kaupa mér viku hjólaferð í Frakklandi í sumar. Við ætlum að fara saman 7 vinkonur - gáfum okkur það í fimmtugsafmælisgjöf.

En ég hef áhyggjur af blogginu, það er ekki að birtast sem ég skrifa og meira að segja í blogger sé ég ekki nema hluta af því sem ég hef gert og ekki það nýjasta fyrr en ég er búin að stilla á show last 10 posts.

22:37

 
Úf það er svo kalt úti, fjölæru vorblómin eru öll löggst á hliðina og páskaliljur og túlípanar líka. Þetta er synd.
Nú er ég búin að leggja mig, er á leiðinni í jóga og hef svo allt kvöldið til þess að koma þjóðsögunni inn, þetta er reyndar ekki þjóðsaga heldur huldumannssaga sem gerðist á síðustu öld:-) Meira um það síðar.

17:56

sunnudagur, maí 04, 2003  
Ég var ánægð með mig í gær, vann alveg helling við Háaleitisvefinn, náði gagnlegu símtali við Ingibjörgu Tönsberg svo þetta var fínt. Um fimmleitið í gær fór ég suður í Keflavík og endaði á balli í Stapanum!!! og þvílíkt fjör. Ástæðan var 30 ára útskrifarafmæli úr Kennó (vaá hvað tíminn líður). Bekkurinn minn Bjé bekkurinn hittist heima hjá einum úr hópnum Gunna Jóns, skólastjóra í Heiðarskóla. Þar áttum við mjög skemmtilega stund en fórum svo í Stapann (þangað druslaðist ég reyndar aldrei á ball í gamla daga enda þóttu mér Hljómar alltaf hundleiðinlegir) maturinn var mjög góður og Mummi sem sá um tónlistina vissi nákvæmlega fyrir hvaða hóp hann var að spila. Nú ætla ég að fara í jóga hjá Jónínu Ben og fara síðan niður á Borgarbókarsafn að leita mér heimilda. Var einhver að tala um að þetta verkefni ætti að taka 40 klst. í vinnslu........
12:11

 
This page is powered by Blogger.